Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Óþarfa viðkvæmni?

Mér skilst að Guðfríður Lilja sé hörkudugleg og drífandi. Því óska ég henni innilega til hamingju með nýja starfið og óska henni velfarnaðar í því.

En er hún ekki ráðin sem framkvæmdastjóri flokksins? 
Ekki er Ingibjörg Sólrún utanríkisráðfrú... heldur utanríkisráðherra.
Ekki var Vigdís Finnbogadóttir forsetning Íslands, eða forseta... heldur forseti.
Ekki er Hanna Hjartardóttir forkona Skólastjórafélags Íslands... heldur formaður.

Konur eru líka menn, þ.e.a.s. kvenmenn. Ég lít á það sem hluta af jafnréttisbaráttunni að viðurkenna konur og menn sem jafningja.


mbl.is Guðfríður Lilja framkvæmdarstýra þingflokks VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þökkum okkar sæla fyrir Atlantsolíu!

Það er eins gott að við höfum Atlantsolíu, fyrst þríhöfða þurs gömlu olíufélaganna hagar sér svona, þrátt fyrir að hafa samkeppni. Þegar Orkan var opnuð, var aldrei 10 króna munur á hæsta og lægsta verði, en nú, þegar Atlantsolía heldur verðinu niðri, neyðast Orkuboltarnir hjá Skeljungi að vera 10 kr. lægri en á þjónustustöðvunum sínum. Þið sjáið því að það er Atlantsolía sem er Davíð á móti hinum þríhöfða Golíat, hér á Íslandi.

Ég var einn af þeim fyrstu sem fengu dælulykil hjá Atlantsolíu og nota hann eingöngu, enda afskaplega þægilegt. Þótt Orkan haldi sig 10 aurum ódýrari, (a.m.k. í kringum Atlantsolíustöðvarnar,) þá hvet ég ykkur öll til að versla við eina fyrirtækið sem veitir raunverulega samkeppni, Atlantsolíu!

bensin

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Verð á bensíni hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigendur Keops alltaf verið íslenskir ríkisborgarar!

Eigendur og stofnendur Keops, þeir þeir Kristberg Óskarsson og Ari Harðarson hafa um alla ævi verið íslenskir ríkisborgarar. Þeir félagar í Keops ehf. í Hlíðasmára 11 hófu auglýsingaskiltagerð vorið 2006, en þeir hafa áralanga reynslu úr hönnunar-, auglýsinga- og skiltagerðarfaginu. Reynslu sem skilar sér til viðskiptavina, ekki aðeins í vel unninni vöru, heldur í hagkvæmum og endingargóðum lausnum. Kíkið á vefsíðu þeirra: www.keops.is


mbl.is Keops komið í íslenska eigu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og að syngja bara um Breiðholtið á Reykjavíkurhátíð

Sem borinn og barnfæddur Njarðvíkingur, finn ég hjá mér þörf að tjá mig um nýja Ljósanæturlagið. Að syngja bara um Keflavík er ekki ásættanlegt, þar sem Reykjanesbær heldur þessa hátíð. Á þá að syngja um Njarðvík næsta ár og Hafnir 2009?

Mér finnst þetta ámót því að haldin væri Reykjavíkurhátíð, þar sem valið yrði lag þar sem bara er sungið um Breiðholtið. En... mér finnst ekki rétt hjá fjölmiðlum að ráðast alltaf á Jóa Helga, þótt hann hafi samið lagið. Það er Ljósanæturnefndin sem á að svara fyrir.

Annars er lagið ljómandi fínt, eins og langflest lög Jóa, þótt mér finnist hann hafa farið langt fram úr sjálfum sér þegar hann samdi lagið við Söknuð Vilhjálms Hólmars Vilhjálmssonar. Það er tær snilld og verður erfitt að toppa.


mbl.is Ljósanótt hafin í Reykjanesbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr ljósmyndari á Mogganum?

Ef Þóra Kristín er ánægð með starfslokasamning sinn og samskipti við aðra yfirmenn, er ekki hægt að rövla fyrir hennar hönd.

En það er annað sem vakti athygli mína við þessa frétt. Það var hver tók myndina af Þóru Kristínu, sem var notuð með fréttinni. Er þetta nýráðinn ljósmyndari á Mogganum?


mbl.is Þóru Kristínu sagt upp á Stöð 2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir kaupa eiginlega þennan snepil?

Ég held að fólk verði heilbrigðara og gáfaðra ef það sleppir því að kaupa þennan DV-snepil.
mbl.is Lýsa stuðningi við bæjarstjóra Seltjarnarness
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugsanlega? hmmm...

Auðvitað verður að draga úr starfseminni, þar sem neyðarvistunin brann nánast til kaldra kola. Því er ekkert hugsanlegt við það, næstu daga og vikur.
Annars hljómar þetta svipað og frétt á Bylgjunni í dag, þar sem sagt var að ökumaður hefði ekið út af vegi í Garðabæ um helgina. „Maðurinn er grunaður um ölvun við akstur,“ sagði Jón Örn Guðbjartsson og bætti svo við: „Ekki var hægt að yfirheyra manninn sökum ölvunar.“
mbl.is Hugsanlega dregið úr starfsemi meðferðardeildar Stuðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Því fyrr, því betra!

Það er bráðnauðsynlegt að taka upp snyrtilega og hagkvæma skólabúninga sem allra fyrst í öllum grunnskólum, alveg frá fyrsta og upp í tíunda bekk. Slíkt dregur úr einelti, hjálpar efnaminni fjölskyldum og eykur samkennd krakkanna.

Engum dytti í hug að fetta fingur út í búninga íþróttafélaganna, er það? Nei, því fyrr sem skólabúningar verða teknir í notkun, því betra! 


mbl.is Flestir vilja vera í skólabúningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villimenn í Kópavogi?

Hefði ekki verið heppilegra hjá „Sumarliða“ að skrifa: „Fjöldi ökumanna villtist í Kópavogi í gær“?
mbl.is Fjöldi ökumanna var villtur í Kópavogi í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýir kassar hjá Nóatúni

Vegna þess hvar ég vinn og hvar ég á heima, fer ég langoftast í Nóatún í Hamraborg eða Furugrund, þegar ég kaupi í matinn á leiðinni heim. Nú er búið að uppfæra alla búðarkassana hjá þessum verslunum og ég er allt annað en ánægður með þær framkvæmdir.
Nú er ekki lengur hægt að sjá hvað viðkomandi vara kostar, þegar henni er rennt yfir strikamerkjalesarann. Af hverju ekki? Er ekki skjár fyrir kúnnann, sem skv. landslögum á að vera til staðar við sérhverja sjóðvél, eins og það heitir á fínu máli? Jú, jú. Það er skjár fyrir kúnnann, en þeim skjá er komið fyrir á bakvið tímarit, súkkulaði og tyggjó, sem búið er að raða eins og frímerkjum í frímerkjabók, fyrir ofan færibandið. Þetta gengur svo langt sums staðar að það er ekki hægt að sjá grey kassabarnið fyrr en maður stendur beint fyrir framan það.
Svo dingla tyggjópokarnir og fleira yfir færibandinu og ég hef nokkrum sinnum séð mjólkurfernu, eða aðra vöru, ýta einum eða fleiri tyggjópokum fram af höldunni og detta á færibandið.
En það er lágmarkskurteisi að viðskiptavinurinn fái að sjá verð hverrar vöru um leið og henni er rennt í gegn, því allt of oft lendir fólk í því að taka vöru sem er verðmerkt á hillu mun lægra en verðið sem stimplast á strimilinn við búðarkassann. Það er of seint að gera eitthvað þegar heim er komið. Ég keypti kattasand í gær, sem kostaði 496 kr. á hillumerkingunni, en 998 kr. á kassanum. Ég tók eftir þessu á strimlinum (staldraði við því mér fannst þetta heldur dýrt sem ég hafði keypt) og þá kom þessi rúml. 500 kr. verðmunur í ljós og ég fékk 502 kr. endurgreiddar hjá verslunarstjóra.
En... verðskjár á að vera á hverjum kassa, sem snýr að viðskiptavininum, skv. lögum. Athugið það, Nóatúnsstarfsmenn!

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Kr.

Gunnar Kr. býr í Kópavogi. Það er gott að búa í Kópavogi. Þriggja drengja faðir og áhugamaður um mannlegt atferli, tónlist, kveðskap og töfrabrögð.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband