Færsluflokkur: Bloggar
10.9.2007 | 00:40
Hættuleg ökukennsla!
Í gær fór ég í Smáralind með yngsta syninum. Það var fullt af bílum við aðkeyrsluna til móts við Select og við dóluðum bara rólega með röðinni, vinstra megin, því ég ætlaði svo að beygja til vinstri. Ég hélt satt að segja að það væri löngu komið rautt ljós fyrir aftan mig, þegar ég sé bíl koma á hægri akrein og stoppa við hliðina á mér og gefa stefnuljós til vinstri. Svo kom grænt ljós aftur og þá komst enginn á hægri akrein, fyrir þessum sem var stopp. Vinstri röðin hafði ekkert mjakast, svo hann tekur stefnuljósið af, ekur aðeins áfram, yfir óbrotna línu og treður sér til vinstri og inn í röðina. Þegar hann ók framhjá mér, sá ég að bíllinn var ekki aðeins merktur Ökukennsla, heldur líka: www.okukennslan.is, með stórum stöfum á öllum hliðum bílsins... og undir stýri var ungur piltur, á að giska 16 - 17 ára. Svo þegar röðin mjakaðist áfram beygði hann til vinstri inn á útistæðið, áður en að bílageymsluhúsinu kom, og fór beint á móti bannskiltinu Innakstur bannaður. Ég fór hins vegar í gegnum fyrstu röðina í bílageymslunni og út aftur á útistæðið, þar sem nóg var af stæðum. Svo labbaði ég að kennslubílnum farþegamegin (lesist: kennaramegin) og spurði manninn hvort hann væri að kenna piltinum hvernig ætti ekki að aka? Hann brást hinn argast við og sagðist vera að kenna honum hvernig ætti að aka. Rétt í því kom að kona nokkur og hún hellti sér yfir ökukennarann. Hvað honum gengi eiginlega til að láta piltinn margbrjóta umferðarreglurnar svona. Ég tók undir og benti honum á að hann hefði látið piltinn brjóta a.m.k. 3 - 4 umferðarlög, þar með talið að aka yfir óbrotna línu og aka á móti skiltinu Innakstur bannaður. Kennarinn kvað nei við, það væri ekkert slíkt skilti þar og hann hefði oft ekið þarna inn á bílastæðið, þar væri ekkert skilti. Ég bauðst til að sýna honum skiltið, og svo elti hann mig að útkeyrslunni og viti menn... þar var þetta líka svakastóra rauða skilti, með gulu striki. Ég spurði ökukennarann hvort ekki væri kominn tími á upprifjunarnámskeið í ökukennslu. Þetta þýddi sko Innakstur bannaður. Kennarinn missti andlitið og sagði: Þetta er rétt hjá þér, ég tók ekki eftir þessu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.9.2007 | 10:04
Kostuleg verslunarmennska
Þetta er alveg kostulegt!
Annars vegar:
Hannes Sigurbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri Office 1, segir reglurnar um þrjú eintök á mann vera settar til verndar viðskiptavinum verslunarinnar.
Við hugsum um hag viðskiptavinarins, svo þú færð bara að kaupa þrjár bækur, þér til verndar. Þú gætir nefnilega fengið bakverk á að bera fleiri bækur.
Og svo hins vegar:
Hannes segir að hefði Jóhann kynnt sig strax við komuna í búðina hefði aldrei orðið nein rekistefna út af innkaupunum.
Þú ferð bara á kynningarbásinn við inngang verslunarinnar og gerir skilmerkilega grein fyrir þér, heilsar starfsfólkinu kurteislega og þá sleppurðu við að fá réttarstöðu grunaðs manns í versluninni.
![]() |
Mátti ekki kaupa tíu frönskubækur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.9.2007 | 18:47
Kynnt voru í dag?
Kynnt voru í dag niðurstaða dómnefndar, sem farið hefur farið yfir tillögur í hugmyndaleit um uppbyggingu í Kvosinni. stóð á mbl.is í dag.
Það er greinilegt að margumræddur Sumarliði voru enn við störf á mbl.is nú í septemberbyrjun.
![]() |
Niðurstöður kynntar í hugmyndaleit um uppbyggingu í Kvosinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.9.2007 | 13:21
Skemmtilegasta félag landsins!
Ég held að það megi fullyrða að þetta sé skemmtilegasta félag landsins.
Hið íslenska töframannagildi var stofnað 29. febrúar 2007 og er hringur nr. 371 innan IBM, International Brotherhood of Magicians.
Stofnfélagar HÍT eru: Jón Víðis Jakobsson, Gunnar Kr. Sigurjónsson, Baldur Brjánsson, Bjarni Baldvinsson, Magnús Böðvarsson, Pétur Pókus, Björgvin Franz Gíslason, Valdemar Gestur Kristinsson, Lárus Guðjónsson, Ingólfur H. Ragnarsson, Pétur Þorsteinsson og Sigurður Helgason.
Fundir eru haldnir síðasta miðvikudag hvers mánaðar, nema í júní, júlí og desember kl. 19:58
![]() |
Töfrum líkast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.9.2007 | 10:23
Þungun getur orsakað fæðingu!
Ja, hérna, hér!
Af hverju var þessi frétt annars ekki sett á forsíðu Morgunblaðsins, með fimm dálka fyrirsögn?
Nei, þetta er ein heimskulegasta frétt sem ég hef séð lengi!
![]() |
Búfjárbeit getur orsakað uppblástur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2007 | 18:05
Spörkuðu þeir boltanum útaf?
Hvað er eiginlega með Eyjapeyja þessa dagana? Þessir réttindalausir í árekstri, annar nýkominn með bílpróf og sektaður þrisvar í sömu vikunni...
Af hverju fara þeir ekki og fá útrás í fótbolta? Eða... var boltanum kannski sparkað útaf Heimaey?
![]() |
Tveir drengir slösuðust á mótorkrosshjólum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2007 | 11:47
Flestir víst löngu komnir inn í húsið...
![]() |
Óstundvísir Íslendingar spilltu tónleikum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.9.2007 | 11:26
Eitthvað hlýtur það að kosta...
![]() |
Íslandspósti heimilt að gefa út persónuleg frímerki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2007 | 11:21
Hættur í löggunni?

![]() |
Haraldur Johannessen ritstjóri Viðskiptablaðsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2007 | 11:12
Burt með skírteinið í ár!
![]() |
Efnilegur" ökumaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Viðskipti og fjármál