Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bækur

Jólakveðja

snjokarl.jpg

Sendi ykkur öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár!


Bráðskemmtilegt kvöld og „uppskurðurinn“ var flottur!

Uppskurður Baldurs Brjánssonar á Græna hattinum

Hólakvöldið á Græna hattinum á Akureyri var bráðskemmtilegt. Davíð Hjálmar Haraldsson las vel ortar sonnettur, Hjálmar Freysteinsson las smellnar limrur, ég tengdi tvo einstaklinga (sem ekkert þekktust) svo sterkum tilfinningaböndum að konan skynjaði snertingu sem maðurinn varð fyrir og síðan var hápunktur kvöldsins þegar töframaðurinn Baldur Brjánsson „skar upp“ með berum höndum. „Sjúklingurinn“ var Hjálmar læknir Freysteinsson og aðstoðarmaðurinn var akureyrski töframaðurinn Einar einstaki. Það er að vísu rangt haft eftir í fréttinni, að á pilluglasinu sem kom úr iðrum Hjálmars stóð að pillurnar væru gegn ritstíflu og væru stuðla- og endarímsaukandi.

Eins og kemur fram í bókinni um Baldur, Töfrum líkast, þá skar hann upp í sjónvarpssal fyrir rétt rúmum 30 árum, sem hafði þær afleiðingar að ferðir Íslendinga til Filippseyja í lækningaskyni lögðust alveg af.

Baldur nú borar í Hjálmar
og baldinn um innyflin fálmar.
En mér fyndist það rangt,
ef hann færi of langt.
– þá yrðu sungnir hér sálmar.


mbl.is Uppskurður á niðurskurðartímum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baldur Brjánsson og Laddi saman úti á Spáni

Baldur Brjánsson og LaddiÚr bókinni „TÖFRUM LÍKAST - Saga Baldurs Brjánssonar töframanns“

Snemma á tíunda áratugnum fóru Baldur Brjánsson og Laddi í fjölmargar ferðir á vegum Samvinnuferða/Landsýnar til Cala d‘Or á Mallorca til að skemmta Íslendingunum.
„Þetta var ofboðslega skemmtilegur tími,“ rifjar Laddi upp. „Eins og áður þurftum við ekki að sinna okkar vinnu fyrr en seinni part­inn, svo við nutum þess að spila golf og vor­um yfirleitt komnir út á völl snemma á morgnana. Þótt Bald­ur sé nú ekki mikill morgunhani, þá lét hann sig hafa það þarna.

Svo var það einn morguninn að við vorum eitthvað að flýta okk­­ur út á golfvöllinn, tókum ókeypis skutlu frá hótelinu og út á völl, eins og alltaf. Svo þegar við komum þangað, átt­­uð­um við okkur á því að við höfðum báðir gleymt öllum pen­­ing­unum heima á hóteli. Ekki bara annar okkar, heldur báð­ir sama daginn. Alveg ótrúlegir saman, félagarnir. Jæja, með því að tína saman smámynt úr öllum vösum og golf­pok­unum, gát­um við rétt skrapað fyrir vallargjaldinu, en gátum ekki leigt okk­ur golfbíl, eins og við gerðum annars alltaf.
Við ákváðum, frekar en að eyða meira en klukkutíma í að fara aftur heim á hótel með skutlunni til að ná í peninga og svo aftur til baka út á völl, að það væri lítið mál fyrir okkur, bráð­unga mennina, að labba bara í þetta sinn. Með það lögðum við sprækir af stað.
En þetta var nýr völlur, einhver svakaleg framúrstefnuleg hönn­un, og ekkert nema hólar og gil, upp og niður, fram og til baka. Svo var sólin komin hátt á loft og tekið að hitna ískyggi­lega mikið. Við áttum ekki peseta með gati til að kaupa okkur vatn, svo við vorum orðnir ansi framlágir þeg­ar við komum að áttundu brautinni. Ekki einu sinni hálfn­aðir með völlinn.
Á áttundu braut hafði verið útbúinn lítill andapollur, þar sem nokkrar spænskar  endur syntu um í ró og spekt. Ég     umbreyttist gjör­sam­lega, varð bara eins og teikni­mynda­karl­inn í eyði­mörkinni, sem sér hillingar. Svo ég grýtti frá mér golfsettinu og hljóp gargandi að andapollinum og hrópaði í sí­fellu: „Vatn! Vatn! Vatn!“
Það varð uppi fjöður og fit á pollinum, end­urnar forðuðu sér gargandi upp úr hinum megin, en ég sá ekkert nema kalt og svalandi vatnið. Svo þegar ég kom að pollinum þá henti ég mér niður við brúnina og dýfði sjóð­andi heitum hausn­um ofan í vatnið til að kæla mig og jós því svo yfir mig eins og ég gat.
Þá tók ég eftir því að Baldur trylltist alveg af hlátri. Ég skildi ekkert í því af hverju hann hló svona mikið og á end­an­um gat hann ekki staðið í lappirnar og leið nánast mátt­laus nið­ur á grasflötina.
„Hvað?“ spurði ég í sakleysi mínu. „Af hverju ertu að hlæja svona? Hvað er svona fyndið?“
En hann kom ekki upp einu einasta orði, heldur benti bara á mig og tók svo í hárið á sér eins og hann væri að taka eitt­hvað úr því og benti svo aftur á mig, gargandi af hlátri.
Þá leit ég niður á hvítu golfskyrtuna mína og sá að hún var útötuð í andaskít. Ég renndi fingrunum í gegnum hárið og það voru andaskítskleprar í því öllu, framan í mér og nán­ast á öllum skrokknum. Í sömu andrá gerði ég mér grein fyr­­ir því að ég lyktaði ekkert sérlega vel, sérstaklega þar sem sólin var byrjuð að þerra mig. Það var nánast eins og ég hefði verið í leirbaði, löðrandi í andaskít sem harðnaði hrað­­ar en ég kærði mig um. Ég reyndi að skola það mesta af mér, með því að róta sem minnst upp af botninum, en það gekk ekkert of vel.
Ég varð svo að sitja einn aftast í skutlunni á leiðinni heim á hótel, því ég lyktaði eins og ég hefði kúkað á mig og leit út eins og gamall útigangsmaður sem hafði ekki komist í bað í nokkur ár.
Þetta er líka eitt af mörgu sem Baldur er enn að stríða mér á, rétt eins og þetta hefði gerst í síðustu viku.“


Æskuár Baldurs Brjánssonar töframanns

Baldur tveggja ára gamallÚr bókinni „TÖFRUM LÍKAST - Saga Baldurs Brjánssonar töframanns“

Árið 1954 var haldið brúðkaup Bjarkar, systur Brjáns, og Guð­mundar Þórhallssonar bókbindara. Sama sumar komu þau í Rauðumýrina og Guðmundur settist hjá bræðrunum ungu og fór að spjalla við þá. Hann tók krónupening úr vasa sínum og sýndi strákunum hann. Því næst setti hann pen­inginn í hina höndina og blés á hana – og svo þegar hann opnaði lófann, hægt og rólega, fingur fyrir fingur, var peningurinn horfinn. Ingi hélt áfram að leika sér, enda að­eins þriggja ára gamall, en Balli starði opinmynntur á tóma hönd Guðmundar og sagði ekki orð. Því næst færði Guð­­mundur tómu höndina aftur fyrir hnakka Balla og skyndi­­lega fann hann peninginn detta ofan í hálsmálið sitt aft­­an­vert úr tómum lófanum.
Þegar Baldur rifjaði þetta upp síðastliðinn vetur, horfði hann hugsandi út í loftið og sagði svo allt í einu:
„Ég man ennþá tilfinninguna þegar peningurinn rann nið­ur eftir bakinu, undir náttfötunum. Heyrðu! Ég var í bláum nátt­fötum! Hugsa sér, ég var í bláum náttfötum!“
Svo skellihló hann, því honum fannst ótrúlegt afrek að muna svona smáatriði sem gerðist fyrir tæpum 54 árum síð­an.
Þetta gerðist þegar Balli var aðeins 6 ára gamall og varð til að kveikja hina óslökkvandi þrá hans og löngun í að læra töfra­brögð. Hann segist hafa hugsað bæði oft og lengi um þetta atvik. Það varð ekki aftur snúið, hann hafði greinilega feng­ið töfrabakteríuna. Hann var líka óspar á að segja vin­unum frá þessum fræga töframanni sem væri kominn í fjölskylduna, Guðmundi, töframanninum frá Reykjavík, sem gat látið peninga hverfa og birtast að vild. Það var ekki ofsögum sagt að krakkarnir öfunduðu Balla að eiga svona stórkostlegan frænda. Það þótti honum heldur ekki leið­inlegt. Hann reyndi líka sjálfur, oft og lengi að láta pen­ing­inn hverfa, eins og Guðmundur frændi hans, en það liðu mörg ár þar til hann lærði handbragðið. Guðmundur kjaft­aði ekki frá leyndarmálinu.

- - - 

Baldur og Júlli bróðir hans„Eitt af því sem við kepptum í var holustikk,“ rifjar Gísli [H. Sigurðsson vinur Balla] upp. „Þá var grafin smá hola, ekki djúp, og þangað hentum við smápeningum úr vissri fjarlægð. Sá sem náði að láta sinn pen­ing lenda næst miðjunni vann allan pottinn. Þetta voru mest einseyringar og fimmeyringar, en safnaðist stundum sam­an og oft fór hýran í þessa keppni.“
„Já það var mjög vinsælt á þessum árum,“ segir Baldur. „Ég man að einu sinni var ég kominn með fullan poka af eins­eyringum og ég fór með hann út í garð og gróf hann á milli blómanna hjá mömmu. Daginn eftir fór ég svo með nokkra af yngri krökkunum út í garð og sýndi þeim sjó­ræn­ingja­kort sem ég hafði teiknað, en sagði þeim að ég hefði fund­ið það. Ég labbaði svo þvers og kruss um garðinn eftir kort­inu, með krakkahópinn á eftir mér, og endaði á milli blóm­anna þar sem X-ið var á kortinu. Þar gróf ég niður og viti menn, haldið þið ekki að ég hafi grafið upp fullan poka af peningum. Þetta þótti krökkunum stórmerkilegt og ég hækk­aði gríðarlega í metum hjá þeim við þetta.“

Bragi, frændi Balla, var sýningarmaður í Borgarbíói á Ak­ureyri á árunum 1955-1960. Þá fóru krakkar yfirleitt allt­af í bíó á hverjum sunnudegi og var Balli þar engin und­an­tekn­ing. Það skipti engu máli hvaða mynd var sýnd, bíó var bíó. Baldur minnist vel myndar sem heitir Risinn, Giant frá 1956, sem var síðasta kvikmyndin sem James Dean lék í. Í einu atriði myndarinnar var Dean með reipi, hélt í annan enda þess og hristi það snöggt. Með sveiflunni tókst honum að hnýta hnút á bandið. Balli heillaðist af þessu einfalda, en snjalla bragði og minnist þess að hafa setið tímunum saman, dag eftir dag og viku eftir viku, við að ná réttu sveiflunni, þar til honum tókst það. Síðan hefur hann alltaf getað hnýtt hnút á band með því að hrista það á réttan hátt og á tímabili gat hann einnig hnýtt hnút á bindi með því að halda í annan end­ann á því og hrista það rétt.
„Brjánn, pabbi Balla, hljóp stundum í skarðið fyrir Braga bróð­ur sinn í bíóinu,“ segir Gísli. Þá var oft gaman, þegar hann leyfði hann okkur Balla að koma með sér niður eftir. Þá fór­um við með honum inn í sýningarklefann og fylgdumst með því þegar hann undirbjó sýninguna, setti filmurnar á sýningarvélarnar, þræddi og setti svo í gang. Þetta voru óhemju stórar og flottar græjur. Hann þurfti svo að kíkja út um eitt gægjugatið á tjaldið, þegar kom að skiptingum á milli véla.“
- - -
„Þessir tímar þarna í sýningarsalnum voru spennandi,“ seg­ir Gísli. „Ég man hvað hinum krökkunum fannst mikið til þess koma að við Balli hefðum fengið að sjá bannaðar mynd­ir í bíóinu, þótt við þyrftum að kíkja í gegnum gægjugatið. En þetta hafði nú líka miður góðar afleiðingar fyrir mig, því eft­ir að ég sá einhverja hryllingsmyndina dreymdi mig svo illa, fékk martraðir margar nætur í röð, að ég ákvað í kjöl­farið að sleppa öllum bönnuðum myndum. Ég held samt að Balli hafi haldið uppteknum hætti.“
 


Bók um Baldur Brjánsson töframann

baldur-augl-2x10

Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út bókina Töfrum líkast - Saga Baldurs Brjánssonar töframanns. Þetta er fyrsta ævisaga íslensks töframanns sem kemur út og spannar hún ævi Baldurs frá fæðingu árið 1948 og fram til nóvember 2008.

Í bókinni segir Baldur frá litríku lífshlaupi sínu á einlægan hátt og dregur ekkert undan. Í henni er að finna fjölmargar frásagnir sem aldrei hafa heyrst fyrr og ýmis leyndarmál afhjúpuð - hvað varð til dæmis um hvítu dúfuna?

Gunnar Kr. Sigurjónsson skrifaði bókina, sem er 352 bls. með 32 myndasíðum.


Til hamingju Siddi frændi!

Minnisbók Sigurðar Pálssonar er afskaplega áhugaverð og vel skrifuð bók, þannig að þetta kemur svosem ekki mikið á óvart. En það er alltaf gaman þegar einhver sem maður þekkir, eða einhver í fjölskyldunni fær verðlaun eða viðurkenningu. Til hamingju Siddi frændi!
mbl.is Sigurður og Þorsteinn fá bókmenntaverðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Gunnar Kr.

Gunnar Kr. býr í Kópavogi. Það er gott að búa í Kópavogi. Þriggja drengja faðir og áhugamaður um mannlegt atferli, tónlist, kveðskap og töfrabrögð.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband