Færsluflokkur: Bloggar
23.8.2007 | 22:29
Eymingja Stuðmenn... Hverjir eru þeir annars?
Þeir eru líka Stuð-menn og mega þess vegna stuða fólk, eins og þeir hafa alltaf gert. Upphaflega komu þeir fram undir fölskum nöfnum og með stórar grímur sem huldu höfuð þeirra. Var kvartað þá? Nei, fólk spuguleraði, en enginn kvartaði. Annars finnst mér ansi skondið nú orðið, að það þarf alltaf að taka fram að þeir spili lögin sín í gömlu útsetningunum.
Ég vildi öllu heldur velta fyrir mér spurningunni: Hverjir eru Stuðmenn? Ég fór á tónleika þeirra í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og þá var Guðmundur Pétursson á gítar (snilldar gítarleikari) en ég átti von á Þórði Árnasyni. Einhver sagði líka að Ásgeir hefði ekki verið trymbillinn í garðinum, en ég sá trymbilinn aldrei, þar sem ég stóð. Á vefsíðu Stuðmanna stendur að Hildur Vala sé í Stuðmönnum. Stundum er Valgeir kynntur sem hluti Stuðmanna, en stundum er hann gestur. Eyþór Gunnarsson hefur lengi verið titlaður Stuðmaður, en ég spyr... hverjir eru Stuðmenn í dag? Er þetta eins og hamarinn, sem er 30 ára, en samt hefur verið skipt þrisvar um haus og fimm sinnum um skaft? Það geta nú flestir verið sammála um að Stuðmenn eru fantagóð hljómsveit, það vitum við sem sáum þá í Royal Albert Hall, en þeir mættu nú alveg uppfæra vefsíðuna sína og upplýsa okkur um... Hverjir eru Stuðmenn í dag?
![]() |
20 ára afmæli Mosfellsbæjar fagnað á tónleikum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.7.2007 | 06:37
Kominn til Thailands
Jæja! Þá er ég kominn aftur til Thailands eftir ótrúlega skemmtilega ferð um Kambódíu, frá höfuðborginni Phnom Penh og niður Tonle Sap með báti, alveg til Siem Reap.
Í Phnom Penh, sá ég bæði skemmtilega staði og líka staði frá þjóðarmorðum Pol Pots um 1975-1979, þegar milljónir manna, kvenna og barna voru myrt.
Hjá Siem Reap sá ég t.d. Angkor Wat (sjá hér til vinstri), Angkor Thom (sjá hér að neðan), Angkor Bayon og fleira og fleira. Ég prílaði upp og niður steintröppur þar sem ástigið var stundum grynnra en breiddin a fætinum minum.
Og þar var vatnið keypt í eins og hálfs lítra brúsum, sem hvarf eins og dögg fyrir sólu.
Segi frekar frá ferðinni eftir að heim verður komið og skelli inn myndum sem ég tók.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.7.2007 | 11:25
Kominn til Phnom Penh í Kambódíu!
Jæja, þá er ég kominn til Phnom Penh í Kambódiu. Það er mjög sérkennilegt að vera hér. Um 3 milljónir búa í borginni og virðast flestallir vera á ferðinni á milli kl. 16 og 18. Sumir á skellinöðrum, sumir á reiðhjólum, aðrir á ýmsum sérkennilegum farartækjum búnum til úr hjólum eða skellinöðrum að hluta. Umferðarmenningin er hreint brjáluð, allir troðast sem þeir geta og stundum getur umferðin á einni akrein komið úr 4 áttum eða fleiri.
Fer á morgun til Siem Riep til að skoða Angkor Wat, Angkor Thom o.fl. staði þar í kring um norð-vesturhlutann.
Bloggar | Breytt 18.7.2007 kl. 09:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.7.2007 | 16:03
Fáránleg stefna!
![]() |
Reykingar áfram leyfðar í dönskum framhaldsskólum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 17.7.2007 kl. 11:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.7.2007 | 13:28
Kominn aftur fra Laos
Nú er ég kominn aftur frá Laos. Ég fór sömu leið til baka, alveg til Udon Thani. Þaðan flaug ég svo til Chang Mai, sem er í norð-vestur Thailandi, ekki langt frá landamærum Myanmar. Þar var ég eina nótt og fór m.a. í ferð 20 km norður frá Chang Mai, í lítið þorp þar sem konurnar frægu með gíraffahálsana búa.
Allt frá því þær eru smástelpur eru hringir settir utan um hálsinn á þeim. Svo er fleiri og fleiri hringjum bætt við og það sem gerist víst, er að öll bein fyrir neðan hálsinn ýtast smám saman neðar og neðar, þannig að hálsinn virðist lengjast, en búkurinn styttist víst í samræmi við það.
Það var mjög fróðlegt og gaman að koma í þetta litla þorp og sjá hvernig fólkið býr, en auðvitað er búið að aðlaga þetta ferðamennsku nútímans, svo ég þurfti að borga aðgangseyri, líkt og á safni, áður en ég for inn. Svo var líka verið að selja ýmsa handunna muni. Karlarnir og eldri drengirnir voru flestir úti á hrísgrjónaakri að vinna, en stúlkur og konur voru heimavið að vinna að handverki.
Okkur finnst líklega mannvonska við stúlkurnar að gera þetta við þær, en þetta finnst þeim fallegt og allar vilja stúlkurnar jú verða eins fallegar og hægt er. Því lengri háls, því fallegri finnst þeim þær verða.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.7.2007 | 11:02
Kominn til Laos
Já, í morgun fór ég frá Thailandi til Laos. Flaug frá Bangkok til Udon Thani með Nok Air og tók svo leigubíl yfir Friendship Bridge, sem liggur yfir Mekong-fljótið, sem aðskilur löndin tvö. Síðan tók ég annan leigubíl frá Laos-hluta brúarinnar og á Lane Xang-hótelið í Vientiane, höfuðborg Laos.
Búinn að fara í smá skoðunarferð um borgina, fer í lengri ferð á morgun.
Bestu kveðjur,
Gunnar Kr.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.7.2007 | 06:46
Heppinn piltur!
Býsna heppinn Brandur er,
á birkitré að stíma.
Annars væri hann ekki hér,
og eflaust hefði farið ver,
ef hefði hann ekki haft í fórum síma.
GKS
![]() |
Tókst að laga símann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.6.2007 | 08:07
Bestu kveðjur frá Thailandi!
Nú er ég búinn að vera í Thailandi í 5 daga og líkar mjög vel hér. Það er um 30-35 stiga hiti daglega og stundum sól, stundum skýjað. Hef farið á ströndina, í nudd, labbað um og aðallega tekið því rólega, enda veitti ekki af.
Stefnan tekin á Laos í næstu viku.
Bestu kveðjur til allra!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.6.2007 | 00:32
Á leið í sumarfrí
Nú á leið til Laos er hann,
líka skoðar Kambódíu.
Einnig Thailand eitthvað sér hann,
uns svo kemur heim að nýju.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.6.2007 | 15:04
Fargjaldafrumskógurinn ógurlegi!
Í nóvember sl. þurfti ég að fara til London og möguleikarnir voru eftirtaldir:
Icelandair, innifalið: máltíð, vatn, djús, kaffi o.fl. á 40.000 kr. fram og til baka.
Iceland Express, innifalið: ekkert á 38.000 kr. fram og til baka. (Þykjast vera lágfargjaldaflugfélag!)
British Airways, innifalið: máltíð, allir drykkir, þ.m.t. áfengir drykkir á 11.000 kr. fram og til baka.
Já, munurinn var gríðarlegur, svo ég flaug auðvitað með BA og líkaði það mjög vel.
Þetta minnir mig á söguna um manninn sem þurfti að kaupa málningu, ef málningabúðirnar hefðu sömu reglur og flugfélögin.
Í málningarversluninni:
Viðskiptavinur: Hvað kostar innimálningin hjá ykkur?
Sölumaður: Við erum með tvo flokka af plastmálningu á 820 kr. og 1.050 kr. lítrinn.
V: Ég ætla að fá 5 lítra af þessari ódýrari.
S: Það gera 4.100 kr.
Málningarkaup hjá flugfélagi:
Viðskiptavinur: Hvað kostar innimálningin hjá ykkur?
Sölumaðu: Það fer eftir ýmsu. Það eru ótal atriði sem hafa áhrif á verðið.
V: Gætirðu gefið mér meðalverð?
S: Það er nú snúið. Lægsta verðið er 700 kr. lítrinn, en svo erum við með 150 mismunandi verð, alveg upp í 14.000 kr. fyrir einn lítra af málningu.
V: Og hver er munurinn á þessum málningartegundum?
S: Það er enginn munur. Þetta er allt sama málningin.
V: Nú? Þá ætla ég að fá 5 lítra af sjöhundruðkróna málningunni!
S: Já, en fyrst þarf ég að spyrja þig nokkurra spurninga. Hvenær ætlarðu að nota þessa málningu?
V: Hvenær? Eh... ég á frí á morgun og ætli ég drífi mig ekki bara í að mála þá.
S: Á morgun, já? Því miður er málningin fyrir morgundaginn á 14.000 kr.
V: Hvenær yrði ég að mála til að fá 700 kr. málninguna?
S: Eftir þrjár vikur. Og þú yrðir að lofa því að þú myndir byrja að mála á föstudegi og værir að mála alveg fram yfir aðfararnótt sunnudags.
V: Þú ert að grínast!
S: Því miður, við grínumst ekki hér. Svo yrði ég að athuga hvort ég eigi yfirhöfuð einhverja sjöhundruðkróna málningu áður en ég get selt þér hana.
V: Hvað meinarðu? Þú ert með næga málningu!
S: Já, já. En þótt þú sjáir hana, er ekki þar með sagt að hú sé til. Við seljum nefnilega bara ákveðinn lítrafjölda á ákveðnu verði um hverja helgi. Og nú var verðið að hækka í 920 kr. lítrinn.
V: Hækkaði verðið á meðan við töluðum saman?
S: Já, við breytum reglunum oft á dag og þar sem þú ert ekki kominn með málninguna í hendur, ákváðum við að breyta verðinu og hækka það í leiðinni. Svo ef þú vilt ekki lenda í því aftur, myndi ég flýta mér að kaupa þá málningu sem þú þarft. Hvað þarftu marga lítra?
V: Ég veit það ekki alveg. Sennilega 5 lítra, ætli ég kaupi ekki 6 lítra til að vera alveg viss.
S: Neeeeeiii, þú mátt það ekki. Ef þú kaupir málninguna en notar hana ekki, er hægt að sekta þig og jafnvel gera upptæka þá málningu sem þú hefur ekki notað.
V: Hvað varðar ykkur um það hvort ég nota málninguna eða ekki? Ég er búinn að borga ykkur fyrir hana!
S: Það þjónar engum tilgangi að æsa sig.
V: Þetta er bilun! Ég geri ráð fyrir að það myndi eitthvað hræðilegt gerast ef það kæmu óvænt gestir og ég gæti ekki málað?
S: Ég er hræddur um það.
V: Nú er mér nóg boðið! Ég fer bara annað og kaupi mína málningu þar!
S: Það þýðir ekkert. Við kaupum nefnilega öll málningarfyrirtæki sem fara í samkeppni við okkur.
![]() |
Breytt uppbygging á fargjöldum Icelandair |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 40430
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Viðskipti og fjármál