Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Hægt á landsbyggðinni

Já, svona væri örugglega ekki hægt að gera á höfuðborgarsvæðinu, því svo margir eru að flýta sér þar. Fólk myndi bara henda þessu á víðavang, svo þetta flygi um víðan völl.
mbl.is Dularfullur skilaboðahöfundur á Patreksfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drekka minna, hugsa meira?

Það er nú æði langt síðan ég fór síðast í réttir, en það situr í mér hve jafnfullir flestir virtust vera. En án þess að ota fingri að nokkrum, þá er svona 100 kinda tjón grafalvarlegt.
mbl.is Um 100 kindur drukknuðu í Kálfá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldrei að stóla á svikara!

Þeim var í raun nær, Símamönnum – að kalla til einn helsta svikara mannkynssögunnar til að hjálpa sér við að gera auglýsingu. Það mátti svo sem stóla á að hann myndi líka svíkja Símann og versla við keppinautinn.

Þetta minnir mig á nokkuð sem gerðist fyrir fjölda ára síðan. Einn vinur minn var annálaður Alþýðubandalagsmaður og var svo vinstrisinnaður að hann átti erfitt með að taka hægri beygjur á bílnum sínum. Svo er það einhverju sinni að hann sést, syngjandi og spilandi á gítar, á flokkssamkomu Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Þegar hann var inntur eftir þessu, svaraði hann: Að sjálfsögðu! Þó það nú væri, að maður gæti ekki haft pening af þessu liði! Þá kom hann á samkomu D-listans og rukkaði fullt fyrir. En á samkomu G-listans, var hægt að kalla á hann til að syngja og spila, með stuttum fyrirvara... ókeypis! 


mbl.is Merki Vodafone sást í Símaauglýsingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhugasamir kennarar geta gert kraftaverk!

Hér er gott dæmi um hvað sniðugur og áhugasamur kennari getur haft mikil áhrif í skólanum sínum. Ég veit að Tómas Rasmus er frábær kennari og hann hefur, ásamt Húgó, bróður sínum, sett upp vefsíðuna: www.rasmus.is, en þar er að finna allskonar æfingar fyrir þá sem vilja æfa sig í stærðfræði, á ýmsum stigum. Þar er líka tölvulæsivefurinn, sem tekur á helstu þekkingar- og færnimarkmiðum grunnskólans í tölvutækni. Kíkið á vefsíðuna, hún er snilld! En Tómas Rasmus er líka áhugamaður um skák og hefur haldið henni lifandi í Salaskóla, skipulagt skákmót og er með skákæfingar í skólanum bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Fleiri svona kennara, takk!
mbl.is Skákliði Salaskóla boðið til Namibíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppsagnarfresturinn?

Konan sagði:

Mér var rétt uppsagnarbréf 31. ágúst síðastliðinn og gert að vinna út þriggja mánaða uppsagnarfrest, sem ég að sjálfsögðu gerði ekki.

 Hún er nú ekki fyrsta manneskjan sem er sagt upp hér á landi, en ég hélt að það væri bundið í lög að fólk þyrfti að vinna uppsagnarfrestinn, nema um gagnkvæmt samkomulag væri að ræða. Það þýddi ekki að segja: „sem ég að sjálfsögðu gerði ekki“ og strunsa bara út. Tjah, hvað segja VR og Efling við svonalöguðu?


mbl.is Elínu Gestsdóttur sagt upp störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jesús og Júdas báðir hjá Vodafone?

Ég fékk þessa mynd senda áðan. Þar virðist koma í ljós að bæði Jesús og Júdas í auglýsingu Símans, notfæra sér þjónustu Vodafone, en ekki Símans. Ætli það sé ekki vegna þess að auglýsingin var tekin upp í Portúgal og það er miklu ódýrara að notfæra sér þjónustu Vodafone í útlöndum en Símans? Ef glöggt er skoðað, má sjá efri hlutann af orðinu: Vodafone, undir rammanum sem er settur inn í tölvuvinnslu auglýsingarinnar. Skondið!Grin

JesusOgJudas


Gott að hafa réttu samböndin!

Það er greinilegt að maðurinn hefur góð sambönd hjá Mogganum. Flott að fá svona ókeypis auglýsingu, í formi fréttar. Auðvitað á Mogginn að gæta jafnræðis og kynna fleiri ný fyrirtæki og nýja eigendur gamalla fyrirtækja. Smile
mbl.is Nýr eigandi að Parketi & Gólfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alonso… skemmda eplið hjá McLaren

Hvort sem hann nær forskoti á Hamilton eða ekki, þá verður hann alltaf með horn í síðu nýliðans, fyrir að láta hann rassskella sig, heimsmeistarann sjálfan. Það væri því liðinu fyrir bestu að fá annan í hans stað.

Annars get ég ekki annað en hlegið að Mercedes Benz-sjónvarpsauglýsingunni, þar sem Alonso situr og talar þessa líka fínu ensku með örlitlum breskum hreim, en svo þegar hann situr á blaðamannafundi og talar ensku – er erfitt að skilja hvað hann segir, fyrir rótsterkum spænskum hreim. Milli Vanilli... hvað? 


mbl.is Haug ráðleggur Alonso að vera um kyrrt hjá McLaren
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hélt nú alltaf að hún héti Kristskirkja…

Ekki efast ég um að þeir sem mættu þangað hafi átt ljúfa stund. En ég var að velta því fyrir mér hvort Dómkirkjan væri ekki við Kirkjustræti og Kirkjutorg, þótt lóðin tilheyri víst Lækjargötu 14a. Hins vegar hélt ég alltaf að kaþólska kirkjan sem stendur við Túngötu, væri kölluð Kristskirkja eða Landakotskirkja – ekki Dómkirkjan í Landakoti. Það er kannski búið að breyta því, ætli Villi viti af þessu?
mbl.is Sálumessa fyrir Pavarotti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tími til kominn!

Þar kom að því að fólk fékk nóg af yfirgangi tiltölulega fámenns hóps í miðbænum. Vonandi verður framhald á, sem endar með því að fólk sem fer í bæinn að skemmta sér þarf ekki að óttast þessa ribbaldamenningu, sem því miður hefur rutt sér til rúms í bænum.

Hinn fámenni reykhópur, sem  hendir stubbum og öðru rusli á göturnar ætti líka að fá sekt. Það þarf ekkert að henda þessu á götuna, ekki frekar en pappír, plasti eða gleri.


mbl.is Fimmtíu og þrír brutu gegn lögreglusamþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Kr.

Gunnar Kr. býr í Kópavogi. Það er gott að búa í Kópavogi. Þriggja drengja faðir og áhugamaður um mannlegt atferli, tónlist, kveðskap og töfrabrögð.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband