Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Hún er komin út: ORÐABRELLUR - 150 nýjar og stórskemmtilegar orðagátur

Hún er komin út, bókin ORÐABRELLUR, en hún inniheldur 150 nýjar orðagátur í bundnu máli, sem ég setti saman í apríl og maí í vor.

Á kápu bókarinnar stendur:

ORÐABRELLUR
150 nýjar og stórskemmtilegar orðagátur er á margan hátt einstök bók. Bráðsnjallar flrautirnar fá okkur til þess að gefa íslenskri tungu betri gaum en ella, spá og spekúlera í merkingu orða og orðasambanda og beita hugmyndaflugi og kímni við lausn fleirra.

 „Orðagátur eru myndagátur tungunnar. Það er skemmtileg heilaíþrótt að fást við að leysa slíkar gátur og Orðabrellur Gunnars Kr. gefa okkur tækifæri á að takast á við þessa skemmtilegu og gömlu hefð. Þær henta öllum, jafnt ungum sem öldnum,“ segir Hlín Agnarsdóttir, leikstjóri.

„Orðabrellur Gunnars Kristins Sigurjónssonar eru kærkomin viðbót við þennan aldagamla menningararf okkar. Þær eru þjóðlegar og hefðbundnar að forminu til en efnið er úr daglegu lífi nútímamannsins. Arfurinn úreldist ekki, hann gengur í endurnýjun lífdaga,“ segir Davíð Þór Jónsson, þýðandi og skáld.

„Orða- og vísnagátuhefðin er ótrúlega sterk með þjóðinni og er eitt vanmetnasta sérkenni íslenzkrar menningar. Gunnar Kristinn bætir hér af mikilli íþrótt í þann sjóð með vísum sem öll fjölskyldan mun skemmta sér við að leysa. Með hinum orðunum: Þetta er flott stöff.“
Karl Th. Birgisson, stjórnandi fláttarins Orð skulu standa á Rás1.

ORÐABRELLUR
150 nýjar og stórskemmtilegar orðagátur
  Bók sem hentar bæ›i til notkunar í einrúmi
og þar sem fleiri eru saman komnir.
Hún ætti því að vera til á hverju heimili.

Það er Bókaútgáfan HÓLAR sem gefur bókina út og hún fæst í öllum betri bókaverslunum.


Ja hérna hér...

Á Akranesi uppeldið er fágætt,
því ef þeir keyra fullir, skaltu sjá.
Þeim langbest finnst - og líta á það sem ágætt,
í löggu hringja og sjálfir kjafta frá.

 


mbl.is Ölvaður ökumaður hringdi í lögreglu til að láta vita af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eyða mestu peningunum?

Að ýmsu nú hollt er að hyggja
og heilræðin ávallt skal þiggja.
Því uppsprengt verð greiða
og öllu fé eyða,
sem eru 18 - 23.

mbl.is Koma ekki áfram að Einni með öllu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ágúst Ólafur vill tvítyngda stjórnsýslu

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður, vill tvítyngda stjórnsýslu og sagði áðan í útvarpinu:  „Við ættum einnig að huga að tvítyngdri stjórnsýslu, á íslensku og ensku.“ Um daginn lýsti hann einnig skoðun sinni að vilja lækka áfengisverð til muna og fá áfengi selt í matvöruverslunum.

Ágústs-pera-Ólafs skín,
með undurskrýtna lensku.
Hann vill kaupa kláravín,
í KEA – helst á ensku.


Yangon í Myanmar

Upplýsingaskortur virðist hrjá fréttamenn á Fróni, þessa dagana, því bæði í útvarpinu í morgun og á mbl.is í gær, voru fréttir um mótmæli í Rangoon í Búrma.

Burma hlaut sjálfstæði frá Bretum 4. janúar 1948 og 18. júní 1989 (hvorki meira né minna) var nafni landsins breytt í Myanmar. Eftir því sem ég kemst næst, var höfuðborg Myanmar Yangon, (áður nefnd Rangoon), þar til 6. nóvember 2005, þegar borginni Naypyidaw, sem er nálægt borginni Mandalay, var breytt í höfuðborg. En Yangon er sem áður fjölmennasta borg Myanmar, með næstum 5.000.000 íbúa.  


mbl.is Yfir 100 þúsund taka þátt í mótmælum á Myanmar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innlend frétt? Hmmmm...

Ætli Sumarliði sé enn við störf á mbl.is? Ég hefði varla talið að frétt um hugsanlegar lýtaaðgerðir „Jeiló“ ættu erindi í „Innlent | mbl.is | 24.9.2007 | 9:52“ eða hvað?
mbl.is Jennifer Lopez útilokar ekki lýtaaðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tími til kominn...

Ég fór til Myanmar í fyrra og ferðaðist aðeins um höfuðborgina Yangoon og nágrenni hennar. Það var stórkostleg upplifun að koma þangað og friðsamara fólk er vandfundið. Það þarf mikið til, til að fá búddamunka til að taka þátt í skipulögðum mótmælum eins og þessum, svo ég held að allir hljóti að sjá að það liggur mikið að baki hér. Ég ók m.a. framhjá staðnum þar sem Aung San Suu Kyi er haldið í stofufangelsi og hinn almenni borgari þorir varla að líta í átt að húsinu.

Hér má m.a. sjá Myanmar Justice on Trial, frá Amnesty International

„Grænu myndina“, hér að ofan, tók ég einmitt á hrísgrjónaakri í Myanmar í fyrra. Ef þú sérð ekki „græna mynd“ hinkraðu þá aðeins. Myndin breytist!


mbl.is 10 þúsund munkar mótmæla á Myanmar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju er aldrei neinn látinn bera ábyrgð?

Það er með ólíkindum að hér á landi skuli aldrei nokkur maður bera ábyrgð. Menn komast upp með að sólunda fé og sleppa svo hvítþvegnir frá öllu. Við ættum að líta í kringum okkur þar sem menn þurfa að axla ábyrgð.
mbl.is Flest verkefni fram úr áætlun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og svo er kvartað yfir vandræðaunglingum?

Ég held að unglingavandamálið dreifist jafnt og þétt yfir allan aldur, allt til grafar.
mbl.is Ökumaður ók tvisvar útaf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Kr.

Gunnar Kr. býr í Kópavogi. Það er gott að búa í Kópavogi. Þriggja drengja faðir og áhugamaður um mannlegt atferli, tónlist, kveðskap og töfrabrögð.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband