Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Skattur á fólk sem kann ekki að reikna...

Enginn var með allar tölur réttar,
eflaust kætast margir við þá frétt.
Svo örugglega anda nokkrir léttar,
og ætla sér þá næst að velja rétt.

mbl.is Enginn með allar tölur réttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðindaveður

Brjálað rok og rigning hér,
rætist spáin hérlendis - (hvar er sólin?)
En fagurt veður fengur er,
fjöldi dvelur erlendis - (nú um jólin).


mbl.is Fjórða lægðin líklega minni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sveik hann út þetta mikinn mat, eða er DJÖSTÍT svona dýr þjónusta?

Maður veltir því ósjálfrátt fyrir sér, hvort manninum hafi tekist að svíkja út matarskammta svona oft... eða hvort þjónustan sé svona hræðilega dýr að eftir nokkur skipti er reikningurinn kominn upp í 126.000 kall? Ég hef aldrei pantað hjá þessari "djöstít"-þjónustu, enda virðist hún vera ætluð útlendingum sem staddir eru á Íslandi. "Djöstít" væri varla kallað þessu nafni ef þjónustan væri ætluð Íslendingum. Þá væri þetta: "Heimsending punktur iss" eða "Matinn heim punktur iss" eða bara "Matur piss"!

Æ, nei, er ekki bara betra að malla matinn sinn sjálfur heima í eldhúsi? 


mbl.is Sveik út skyndibita fyrir 126 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Taugaveikluð þjóð með sturlunareinkenni

Ég er ansi hræddur um að Bandaríkjamenn séu orðnir hryðjuverkum að bráð. Tilgangnum hefur verið náð. Að gera þjóðina taugaveiklaða með sturlunareinkenni, það er hluti af hryðjuverkaógninni - einmitt  pyttur sem Bandaríkjamenn sögðust ekki ætla að falla í. Ekki dytti öðrum siðmenntuðum þjóðum að koma svona fram við íslenska ríkisborgara, eða hvað?

Nei, Kaninn gerir þetta í skjóli eigin laga - tiltölulega nýlegra laga. Hann heldur að hann geti komist upp með að gera hvað sem er, bara í skjóli laga um ógn gegn hryðjuverkum. Fangelsin í Guantanamo og þau ógnarverk sem þar hafa verið framin, eru líka skýr dæmi um hvernig bandarísk stjórnvöld hafa vaðið áfram án laga, réttinda og samþykkis alþjóðasamfélagsins. Þannig hefur þeim tekist að drulla lengst upp á bak, (nánast upp á hnakka) á sama tíma og þau viðurkenna ekki stríðsdómstól sameinuðu þjóðanna, virða réttindi annarra að vettugi og þykjast svo ætla að rannsaka mál sinna borgara á sínum grundvelli.

Halló?!? Er ekki eitthvað að?

Auðvitað gat konugreyið átt von á því að verða snúið til baka, þar sem hún hafði brotið lög, en að koma fram við hana eins og ótýndan hryðjuverkamann, handjárna, hlekkja og brjóta niður, halda henni án matar svo klukkustundum skiptir og færa svo í hlekkjum í flugvélina, í fylgd vopnaðra kóna, það er einum og langt gengið.

Ég er ánægður að utanríkisráðherra skuli hafa kallað sendiherrann á teppið. 


mbl.is Mál Erlu til rannsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvort gera Frakkar, Chad eða Darfur þetta að innlendri frétt?

frakkarHvort skyldu tengsl Íslendinga við Frakkland, Chad eða Darfur, gera þetta að innlendri frétt?

Ef til vill hefur margfrægur afleysingastarfsmaður mbl.is, sem kallaður hefur verið Sumarliði/Veturliði verið hér að störfum?


mbl.is Frakkar í hungurverkfalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögregluþjónninn hikar með skotbyssu, en ekki með rafbyssu...

Það er á hreinu að lögregluþjónn sem vopnaður er rafbyssu, hugsar sig ekki tvisvar um, þegar hann dúndrar rafmagni í einhvern dóna sem hann er að kljást við. En væri hann með alvöru byssu með alvöru kúlum, þá myndi hann e.t.v. hika aðeins áður en hann skyti. Ég er ekki að mæla með því að lögregluþjónar fái byssur til nota, heldur er ég að mæla gegn því að þeir fái rafbyssur til að leika sér með. Þegar til eru mörg dæmi um að fólk hafi látist eftir að vera skotið með rafbyssu.

Nei, Björn... og aftur nei! 


mbl.is Lést eftir að hafa verið skotinn með rafmagnsbyssu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ullar á Edduna með milljón króna tékka!

Ætli hún Duna hafi ekki bara verið frekar ánægð með hlutskipti sitt; fá afhentan milljón króna tékka í stað bráðins járnklumps á arinhilluna? Það mætti segja mér það!

Óska henni innilega til hamingju með verðlaunin! 


mbl.is Guðný Halldórsdóttir fékk bjartsýnisverðlaunin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt hjá ykkur!

Bestu hamingjuóskir til Ásdísar og Karls Thorberg.

Ég missi ekki af þættinum hans Kalla, Orð skulu standa, því nái ég ekki að hlusta á hann á laugardagseftirmiðdögum, hlusta ég bara á netinu.

Hvað ætli verði langt að bíða þess að mbl.is fái þessi virðulegu verðlaun? Ansi langt, miðað við fyrri afrek. 


mbl.is Verðlaun fyrir málnotkun í fjölmiðlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússneskur maður var sleppt úr fangelsi...?

Ja hérna hér. Þetta hljómar eins og sjálfvirk þýðing á netinu!

Hvar er metnaður mbl.is-manna?

Ef ske kynni að þeir breyti hluta, eins og þeir gerðu fyrr í dag, læt ég upphaflegu fréttina fljóta með hér að neðan.

Rússneskur maður sem hlaut dóm fyrir að myrða danskan flugumferðarstjóra eftir flugslys 2002 var sleppt úr svissnesku fangelsi í dag og er nú á leið til Moskvu. Vitaly Kalojev er 51 árs var sleppt úr fangelsi eftir að hafa setið inni í 5 ár og 3 mánuði.

Kalojev stakk Peter Nielsen með hnífi eftir að hann missti konu sína og tvö börn í flugslysi 1. júlí 2002. 

Hvor missti konu sína og börn? Æ, ég gefst upp!


mbl.is Manni sem myrti flugumferðarstjóra sleppt úr fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins gott að þetta voru ekki járnspýtur...

...já eða stálspýtur.

Þegar menn skrifa:

Að sögn lögreglu hafði maðurinn, sem er 32 ára að aldri, sætt pyntingum, hann sleginn með viðarspýtum á viðkvæma líkamshluta, raflost en þeir höfðu límt fyrir munn hans svo skelfingaróp hans heyrðust ekki út úr íbúðinni.

...er ekki hægt að lesa bullið án þess að mótmæla því hve illa verið er að fara með íslenskt mál. 

Viðarspýtur“?

raflost en þeir höfðu límt fyrir munn hans“? 

 Hvaða sýkill herjar á blaðamenn mbl.is þetta árið? Þetta er alveg með ólíkindum!


mbl.is Bjargað úr klóm mannræningja eftir pyntingar í sjö mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Kr.

Gunnar Kr. býr í Kópavogi. Það er gott að búa í Kópavogi. Þriggja drengja faðir og áhugamaður um mannlegt atferli, tónlist, kveðskap og töfrabrögð.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband