Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Bráðfyndin óheppni ræningjanna

Fréttin í útvarpinu um þessa seinheppnu ræningja var svo fyndin að hún hljómaði eins og frásögn í Spaugstofunni. Hugsið ykkur, að þegar ræninginn stökk inn í Sunnubúðina, með lambhúshettu og hníf, í tvennum buxum og tveimur treyjum (til að geta skrælt ytri fötin af sér á flótta) tilbúinn að ræna vin sinn og samstarfsræningja, sem hafði víst bara unnið í búðinni í 4 daga, var lögreglan á staðnum. Það átti að handtaka hinn ræningjann vegna annars þjófnaðar og þá gerðist þetta. Ég get rétt ímyndað mér svipinn á kappanum, þegar hann stekkur inn í búðina með hnífinn á lofti og beint í fangið á löggunni. LoL

Aumingja ræninginn rolaðist inn,
rettum og aurum að stela.
En nýbúið var þá að handtaka hinn,
hálfvitra ræningjadela.

Í búðina stökk inn með húfu og hníf,
í handjárn fór bófinn með grettur.
Á Hrauninu verður hans leiðindalíf,
langtíma gróðursettur.


mbl.is Í gæsluvarðhald vegna gruns um rán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þurfa menn að vera í réttum flokki?

Undanfarið hefur það gerst í þjóðfélagi voru, að fólk sem hefur verið ráðið til opinberra starfa, hefur verið talið hæft. Þó hafa aðrir umsækendur verið taldir hæfari, skv. starfslýsingum. Samt hafa þeir ekki verið ráðnir.

Þó manneskjan sé reynslurík,
og rétta próf hún hefur.
Að plampast rétt í pólitík,
er prik sem starfið gefur.


mbl.is Gagnrýna ráðningu nýs ferðamálastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

12% hækkun á einu bretti í 10/11?

Ég kom við í 10/11 í gær á leiðinni heim, því mig vantaði pakka af pylsubrauðum. Ég keypti einn hlut til viðbótar og fór svo að afgreiðslukassanum, en þar var enginn. Ég lagði vörurnar á afgreiðsluborðið og beið svo. Ekkert gerðist, enginn kom. Ég leit í kringum mig, horfði á hátt í 20 innkaupakörfur í stafla við kassann (en það voru 3 við dyrnar) og tvo innkaupavagna þar, en engan starfsmann. Þá fyrst sá ég að stúlkukind sem hafði setið inni á kontór silaðist á fætur og var alls ekkert að flýta sér að kassanum. Svo sagði hún mér að þetta sem ég keypti kostaði 448,- kr. og ég rétti henni 500 kall, fékk til baka og beið. Stúlkan var þá strax farin í burtu af kassanum, en hikaði og spurði mig svo (þaðan sem hún stóð) hvort það væri eitthvað fleira? Ég spurði hana á móti hvort það væri ekki vaninn að láta mann fá kassakvittun og hún jánkaði því, kom aftur á kassann og prentaði út kassakvittunina mína. Ég leit á hana og sá að pylsubrauðin, sem voru verðmerkt 159,- kr. í hillunni höfðu hækkað eftir nokkurra metra labb, í 178,- kr. Ég kallaði þá í stúlkuna og spurði hana hvað væri á seyði. Hún drattaðist til mín og ég fékk útskýringar um þessa óvæntu verðhækkun.

- Við erum sko að vinna í því að breyta verðmerkingum á hillunum, sagði hún.

- En þetta er verðmerkt hér á 159,- kr. og það er ólöglegt að hækka vöru frá hillu og að kassa, sagði ég.

- Já, en við erum ekki komin lengra í verðbreytingunum.

- En þið megið ekki hækka verð frá hillumerkingu, svaraði ég.

- Já, ég skal bara borga þér mismuninn, sagði stúlkan og gekk að kassanum. Nú gekk hún hratt.

- Ef ég hefði stungið pylsubrauðspakkanum inn á mig og þú séð það, hefðirðu þá ekki hringt á lögguna?

- Jú, svaraði hún hikandi.

- Á ég þá að hringja á lögguna núna og kæra ykkur fyrir þjófnað? spurði ég ásakandi.

- Ég biðst innilega afsökunar, sagði stúlkan. Ég skal borga þér mismuninn.

Á meðan hún var að tína til þessar 19 krónur sem munaði, benti ég henni enn fremur á það að ef þau svindluðu svona á 1.000 manns, væru þau komin með 19.000,- kr. í vasann af stolnu fé.

Það skal tekið fram að ég hringdi í Mylluna og spurði hvort umrædd 12% hækkun hafi komið frá þeim og skv. upplýsingum frá Pétri S. Sigurgeirssyni sölustjóra, hefur ekkert hækkað hjá þeim frá 1. nóvember og þá var hækkunin langt undir 12 prósentum.

Hvað er þá í gangi, Neytendastofa? 


SPAK hlaut Íslensku ánægjuvogina í fyrra...

Það kemur fram á vefsíðu Sparisjóðs Akraness - SPAK, að þau hafi hlotið Íslensku ánægjuvogina 2007. Það þýðir með öðrum orðum að viðskiptavinir SPAK séu ánægðustu viðskiptavinir fjármálafyrirtækja á síðasta ári, skv. mælingum Capacent Gallup, níunda árið í röð.

Fram kemur að SPAK hafí dúxað í ímynd, væntingum, vörugæðum, þjónustugæðum, virði, ánægju og tryggð. Því sé óhætt að segja að viðskiptavinir SPAK séu þeir ánægðustu í bankakerfinu árið 2007. Ég skil núna af hverju:

 

Ánægjuvogin er óhemjugóð,
og  auðvitað  menn hennar leita.
En sex og hálf milljón... Eru þau óð?
Í yfirdrátt börnum að veita?


mbl.is Sjö ungmenni handtekin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrýtin frétt...

Þetta er afskaplega skrýtin frétt. Að lenda í árekstri við sláturhúsið, sem reyndar er kallað sáturhús á einum stað í fréttinni, það er afskaplega óvanalegt. Og að bíllinn hafi orðið fyrir töluvert miklum skemmdum er líka skrýtið. Ég hefði frekar haldið að sláturhúsið hafi orðið fyrir skemmdum af völdum bílsins. 

Enginn græðir á þeim díl,
og enginn virðist kátur,
að fá unga manninn og hans bíl,
á einu bretti í slátur.


mbl.is Ók á sláturhúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ágætis áramót og fínt skaup

Þetta voru róleg og fín áramót hjá mér að þessu sinni. Yngri synirnir tveir, sem alla jafnan eru hjá mér, fóru til mömmu sinnar sem býr í Frakklandi, 27. desember og mér var boðið í mat og fínerí til vina í Sólheimunum þetta gamlárskvöldið.

Ég var nokkuð sáttur við skaupið, en það hefði getað verið betra... miklu betra. Ástæðan er sú að hóað var í nokkra mektarmenn í þjóðfélaginu, til að leika í stuttu atriði skaupsins. Við mættum kvöld nokkurt í lok október upp í Grafarholt, til að leika mektarmenn þjóðarinnar þegar kveikt var á friðarsúlu Yoko Ono. En það var rok og það var rigning, svo allar tökur höfðu dregist nokkuð. Við þurftum að bíða heillengi og svo kom að því að ung og hress kona vatt sér að okkur til að skrifa niður nöfn okkar félaganna og leiðbeina okkur í stórleiknum. Það var hún Garún.

Við vorum: Bernhard Jóhannesson, Björn Finnsson, Guðlaugur Kristjánsson, Gunnar Kr. Sigurjónsson, Jón Víðis Jakobsson, Konráð Konráðsson, Óskar Guðjónsson og Snæbjörn Ólafsson. Við vorum allir í sparifötum og með bindi og áttum að vera afskaplega virðulegir. Garún sagði okkur að hún yrði að læra nöfn okkar allra... og það gerði hún með því að skrifa nöfnin niður og þar með vissi hún hvað hver hét, án þess að kíkja á blaðið. Merkileg kona! Hún sagði okkur líka að hún væri kölluð Garún, af því að í hennar fjölskyldu hétu svo margir sama nafninu, fjórar Guðrúnar og þrír sem heita William Thomas Möller, svo hún hefði tekið sér þetta sérstaka gælunafn til aðgreiningar. (Við Jón hittum hana svo tveimur dögum síðar og þá heilsaði hún okkur: "Halló Gunnar, halló Jón!"

Jæja, við fórum svo út í rigninguna og rokið og áttum að standa í hnappi og horfa á stóran ljóskastara sem lýsti okkur upp í myrkrinu. Við lékum hlutverk okkar af stakri prýði, en okkur fannst Ragnar Bragason helst til oft segja sömu setninguna: "Þetta var fínt, tökum þetta aftur!" Eftir að við vorum allir búnir að tapa tölu á tökufjöldanum, átti að taka nokkrar nærmyndir í þetta atriði. En um leið og Ragnar kallaði: "Tilbúin!", datt stóri kastarinn um koll og við stóðum þarna öll í svarta myrkri. Þá var komið með annan kastara og tökurnar kláraðar og svo kom hin fróma setning leikstjórans: "Þetta var fínt! Þetta er Rapp!" Við hinir undruðum okkur á hvar Ripp og Rupp voru, en þetta þýddi víst að hann væri kominn með öll sjónarhorn í tökum og við máttum fara heim, hundblautir og gegnkaldir hátt í 3 tímum seinna.

Svo kom gamlárskvöld og það er skemmst frá að segja að þetta frábæra atriði var klippt út úr skaupinu, en nöfnin okkar voru samt með í listanum sem rúllaði yfir sjónvarpsskjáinn í lok þess.  Við vorum að gera því skóna að ástæðan hefði verið bleytan og rokið, því leikurinn var á Óskars-mælikvarða. Þetta var því ágætt skaup, en hefði getað verið svo miklu betra! Grin


Héldu að þeir væru að bjarga bróður Markúsar

Það var haft eftir Markúsi Benjamínssyni að ástæðan fyrir því hve fljótt þyrlan hafi verið kölluð út, hafi verið sú að björgunarmenn hafi haldið að sá sem bjarga ætti hafi verið hjartveikur bróðir Markúsar.

Áður en bjargvættir tölta í túr,
tel ég nú rétt að þeir kanni,
hverjum skal bjarga bráðháska úr,
svo þeir bjargi ekki vitlausum manni.


mbl.is Var í 40 mínútur í vökinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða sundaðferð hentar best?

Sund með stjörnuljós í laug,
leikur hress - án vafa.
Mér hundasund í huga flaug,
en hentar varla að kafa.

mbl.is Synt með stjörnuljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg jól!

Lesendunum óska eg,
alls hins besta um þessa hátíð
og vona að gleði vinarleg,
verði ekki dauf og fátíð. 

 


Vinsamlegar áminningar til ökumanna

 Vegagerð er vinsamleg
og varar eyjarskeggja:
„Ekki er gott að aka veg,
sem eftir á að leggja.“


mbl.is Vegargerðin minnir á framkvæmdir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Kr.

Gunnar Kr. býr í Kópavogi. Það er gott að búa í Kópavogi. Þriggja drengja faðir og áhugamaður um mannlegt atferli, tónlist, kveðskap og töfrabrögð.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband