Leita í fréttum mbl.is

Bráðfyndin óheppni ræningjanna

Fréttin í útvarpinu um þessa seinheppnu ræningja var svo fyndin að hún hljómaði eins og frásögn í Spaugstofunni. Hugsið ykkur, að þegar ræninginn stökk inn í Sunnubúðina, með lambhúshettu og hníf, í tvennum buxum og tveimur treyjum (til að geta skrælt ytri fötin af sér á flótta) tilbúinn að ræna vin sinn og samstarfsræningja, sem hafði víst bara unnið í búðinni í 4 daga, var lögreglan á staðnum. Það átti að handtaka hinn ræningjann vegna annars þjófnaðar og þá gerðist þetta. Ég get rétt ímyndað mér svipinn á kappanum, þegar hann stekkur inn í búðina með hnífinn á lofti og beint í fangið á löggunni. LoL

Aumingja ræninginn rolaðist inn,
rettum og aurum að stela.
En nýbúið var þá að handtaka hinn,
hálfvitra ræningjadela.

Í búðina stökk inn með húfu og hníf,
í handjárn fór bófinn með grettur.
Á Hrauninu verður hans leiðindalíf,
langtíma gróðursettur.


mbl.is Í gæsluvarðhald vegna gruns um rán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Kr.

Gunnar Kr. býr í Kópavogi. Það er gott að búa í Kópavogi. Þriggja drengja faðir og áhugamaður um mannlegt atferli, tónlist, kveðskap og töfrabrögð.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband