Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Hræsni Ameríkanans...

Bandaríska fjarskiptanefndin (FCC) segir að þátturinn, sem er frá árinu 2003, hafi sýnt rasskinnar á konu bæði í nærmynd og frá mörgum sjónarhornum, að því er fram kemur á fréttavef BBC.

Það er álit nefndarinnar að það sé smekklaust að sýna með móðgandi hætti kynferðislegar athafnir eða fólk hafa hægðir í sjónvarpi fyrir kl. 22 á kvöldin.

ABC vísar þessu á bug, og bendir á að rasskinn teljist ekki til kynfæra.

Búið er að sekta allar 52 stöðvar ABC sem hafa sjónvarpað þættinum umdeilda.

Þetta er lýsandi dæmi um hræsni þeirra fyrir vestan haf, því það er jafnvel í lagi að drepa og limlesta í þattum sem eru ætlaðir börnum og fjölskyldum, en að brjóst eða rass sjáist í sjónvarpsþætti er óhugsandi í þeirra augum. Ussssss... Fáránlegt!

Ameríkanarnir æpa og veina,
ef það sést dálítil nekt.
En ókey að myrða og allt hvaðeina,
af athygli glápa í spekt.


mbl.is ABC gert að greiða háa nektarsekt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óheppilega orðuð auglýsing miðað við fréttaefnið fyrir ofan

timi_kominnAnsi var þetta óheppilega orðuð auglýsing, sem birtist á mbl.is undir frétt um óvænt dauðsfall heimsfrægs leikara. Það er nefnilega talað um að tími einhvers sé kominn, þegar lífi hans er lokið og dauðinn ber að dyrum hjá honum. Því virkar þessi auglýsing nánast eins og Aðalskoðun sé hér í hlutverki mannsins með ljáinn og tilkynni einstaklingum hvenær þeirra tími sé kominn.
mbl.is Ledger virðist hafa látist af slysförum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enda eru engin haldbær rök!

Varla er undrun á fjaðrafoki
og fjölmargra veini og kveini.
Þegar alhelstu rökin úr Árna koki:
„Sá eini sem nefndur er Steini“

 


mbl.is Dómarafélag Íslands: Ráðherra færði ekki viðhlítandi rök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsti karlinn (á eftir kvennaskara) í formannspilsinu

Þessi fæddist svona „uforvarendes“ og er alls ekki illa meint, þótt e.t.v. mætti misskilja hana. Smile

Í jafnrétti stendur sig Steingrímur vel,
og stuðning fær alveg helling.
Og starfið það fer honum forkunnarvel,
því mér finnst hann svo óttarleg kelling!


mbl.is Steingrímur J. fyrsti karlinn til að gegna formennsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert óeðlilegt, ef miðað er við vinnu fólks


Stór hópur fólks fær ýmist sköffuð föt, eða fatapeninga, vegna starfs síns og þykir ekkert óeðlilegt við það. Þannig má telja að það sé ekkert óeðlilegt við að einhverjir stjórnmálamenn fái föt til skiptanna, miðað við drulluvinnuna, fnykinn og skítkastið sem sumir virðist stunda í vinnunni. Þeir ástunda greinilega mikla erfiðisvinnu.

Og hvað með allar hnífsstungurnar í bakið? Þarf ekki nýja jakka og nýjar skyrtur fyrir svona fólk?

Ekki er furða að einhverjir Framsóknarmenn,
fatakaup þurfi að stunda í kippum og hrönnum.
Því skítkast, rógburð og bakstungur ástunda enn,
allir sem vinna með framsóknarstjórnmálamönnum.

 

En hvernig er með fatakaupin? Af hverju voru engir kjólar keyptir, eða blússur, nælonsokkar og draktir? Þurftu konurnar í efstu sætunum ekki að líta vel út og vera fínar og sætar? Er ekki eitthvað meira að?


mbl.is Ekkert óeðlilegt við fatakaupin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins gott að Ólafur F. verði ekki lasinn...

Ég var að velta því fyrir mér í kvöld hvað myndi gerast ef Ólafur F. yrði nú lasinn og Margrét Sverrisdóttir tæki sætið í forföllum hans. Jú, þá myndi meirihlutinn falla og yrði að minnihluta, og minnihlutinn yrði að meirihluta. Svo þegar Ólafur F. hresstist og kæmi aftur til starfa, þá myndi minnihlutinn aftur verða að meirihluta og meirihlutinn breyttist sjálfkrafa í minnihluta.

Þetta er svo grátbroslegt að það minnir á manninn sem sagði, þegar hann var spurður hvernig hann hefði það: -Jú, eins og ég er þegar ég er skárri, þá held ég að sé sé skárri þegar ég er verri!

Það er best fyrir Ólaf að verða ekki veikur,
með verki, hita, ógleði og spýju.
Því minnihlutinn myndi keikur,
meirihluti verða að nýju.


mbl.is Ólafur og Vilhjálmur stýra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hámark heimskunnar?

Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem maður heyrir af, (eða sér) atvinnubílstjóra skilja bílinn sinn eftir ólæstan og jafnvel í gangi, á meðan hlaupið er inn til að sinna erindum eða fara inn með sendingu. Eftir því sem sagt var frá fyrr í dag, var þetta einmitt tilfellið, bílstjórinn hljóp inn í banka og skildi glænýjan bíl eftir ólæstan, í gangi og fullan af vörum. 

Þetta er skrýtin og furðleg frétt,
þó fatta mig heilmikið langi.
Bílþjófnað uppá að bjóð' er ei rétt,
með bílinn sinn opinn - í gangi.

 


mbl.is Lýst eftir sendiferðabifreið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilkomulítil fyrirsögn hjá netfréttamiðli

Mér finnst staðallinn hafa lækkað heldur mikið hjá Morgunblaðsmönnum, með slíkri fyrirsögn. Þrátt fyrir gæsalappir og skilning allflestra lesenda, finnst mér þetta lélegt og raunar hættulegt fordæmi. Hvar liggja mörkin? Megum við þá búast við að sjá fyrirsagnir hér, eins og:

    Þriggja bíla  „crash“ á Reykjanesbraut?

    Reykjavík  „smoke-free“ höfuðborg?

    Fólk vill ekki fá  „djönk meil“ inn um bréfalúgurnar? eða

    Barni „seivað“ á síðustu stundu?

Ég vona ekki. Og við eigum rétt á því að fá vönduð vinnubrögð á mbl.is rétt eins og í Morgunblaðinu. 


mbl.is „Böst“ í Leifsstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumar smyglaðferðirnar eru lítt geðslegar...

Hver hefur áhuga á andvökunótt,
með allskonar, spítti og hassi.
Sem geðsturlað burðardýr gamalt og ljótt,
geymdi upp í skítugum rassi.

mbl.is Smyglari tekinn í Leifsstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvara með framboðinu?

Þetta væri fjári fín,
frétt ef bara væri,
aulafyndni, glens og grín
og gamalt fyrirbæri.


mbl.is Ástþór kærir Þórunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Kr.

Gunnar Kr. býr í Kópavogi. Það er gott að búa í Kópavogi. Þriggja drengja faðir og áhugamaður um mannlegt atferli, tónlist, kveðskap og töfrabrögð.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband