Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Norðurlandslimra

Ágætt er allt fyrir norðan,
þeir et' ekki upp gjaldeyrisforðann.
Þeir velja (og vita
í vorsólarhita)
Brynjuís – allir þar borð'ann.



mbl.is Veðurguðir í góðu skapi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ræningjalimra

Svona getur þetta snúist í höndunum á fólki.

Tveir óprúttnir náungar ætluðu að ræna eldri borgara í Álaborg, en þau gömlu lumuðu á piparúða og rafbyssu til búfjárrekstrar og vörðu heimili sitt reffilega. Ræningjarnir eru „þeir“ en gömlu hjónin eru „þau“: 

Þeir ætluðu aldrað' að ræna
og eignast skjótt féþúfu væna.
En eftir stutt þras,
þau öskruðu „GAAAAAAS!“
og tóku þá báða til bæna.

mbl.is Eldri hjón hröktu ræningja á brott
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kallast þetta ekki frekar „heppni“?

Þetta er dæmigert „yfirsópsorðalag“ opinberra aðila að telja það góða reynslu af niðurskurði lækna um borð í skjúkraflutningabifreiðum. Ég myndi frekar kalla þetta heppni, jafnvel hundaeppni, því sem betur fer hefur ekki orðið dauðsfall sem hægt er að rekja til niðurskurðarins, en í fréttatilkynningunni er beinlínis látið líta út sem þetta hafi verið góð breyting. Nei, öðru nær! Heppni og ekkert annað!
mbl.is Góð reynsla af breytingum á sjúkraflutningum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Treystum Eistunum!

Keppendur raddböndin kreista
og kynd' undir sigurneista.
Það Friðriks mun freista,
með fánastöng reista,
nú eingöngu að treysta á Eista!

mbl.is Íslendingar eiga marga stuðningsmenn í Eistlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðir tónleikar hjá „Jóni Þokukennda“

dtbFogerty_1024Það var stórgaman á tónleikum jálksins úr Creedence Clearwater Revival, ljóninu, John Cameron Fogerty!

Ég var kominn í höllina um 20:20 og hinkraði í smástund í anddyrinu eftir þeim síðasta úr hópnum sem fór með mér. Sá Bubba og hann heilsaði mér að fyrra bragði, hefur líklega mundað eftir mér síðan ég hjálpaði honum að tengja prentarann hans við Macintosh-tölvuna í denn... Smile

Þegar við gengum inn, var KK að syngja og spila, ásamt Ásgeiri Óskarssyni á trommur, Þorleifi Guðjónssyni á bassa og gítarleikurunum Pétri Guðmundssyni og Björgvini Gíslasyni (sem var í ham). Ég hafði ekkert heyrt að þeir myndu leika fyrir Fogerty-tónleikana, svo þeir komu skemmtilega á óvart. Hljóðblöndunin var að vísu slök, svo þeir fengu ekki notið sín sem skyldi. Þeir hættu rétt upp úr klukkan níu, en þá áttu tónleikarnir líka að byrja.

En við biðum og biðum og biðum og biðum og biðum ... í 50 mínútur! Fólk var farið að klappa, stappa, baula og púa. Virðulegur maður í drapplitum jakka baulaði meira að segja þegar Fogerty gekk inn á sviðið, en flestir klöppuðu. Það er auðvitað vanvirðing við fólk sem er búið að kaupa miða á tónleika kl. 21 að hefja þá ekki fyrr en tæpum klukkutíma síðar.

Hann byrjaði á CCR slögurum og bætti svo við nokkrum lögum frá sólóferli sínum, Status Quo-smellnum Rockin' All Over the World, sem Fogerty samdi að vísu og svo kom allt í einu lag sem Little Richard gerði frægt, Good Golly Miss Molly, en það lag var á annarri plötu CCR: Bayou Country. Proud Mary kom svo loksins í uppklappinu, en lög eins og Lodi, Who'll Stop the Rain, Down on the Corner, Cotton Fields, Midnight Special, Bad Moon Rising, Fortunate Son, Lookin' Out My Back Door, Suzie Q og I Heard It Through the Grapevine höfðu þá öll hljómað. Sem betur fer, sleppti hann eina CCR-laginu sem ég hoppa yfirleitt yfir, en það er: I Put a Spell On You.

Hann hafði einvala lið hljóðfæraleikara með sér og aðalsnillingurinn held ég að hafi verið sá yngsti í hópnum, Jason Mowray, sem lék á fiðlu, mandólín, dobro, slide-gítar, banjó og ég veit ekki hvað og hvað... 

Í heildina litið, voru þetta magnaðir tónleikar og ég held að allir hafi skemmt sér konunglega. En rafmagnssuð ómaði í hátölurunum alla tónleikana og svo virðast menn aldrei kunna á loftræstinguna, þegar svo margir eru samankomnir. En þrátt fyrir það, fóru allir heim í gær með bros á vör og gleði í hjarta!

fogerty468


Neil Diamond-vísa

Takmarkinu náði Neil,
númer eitt í Billboard-pressu.
Eflaust gerir góðan deil
og græðir pottþétt vel úr þessu.

mbl.is Neil Diamond náði toppsætinu loksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningalimra

Það sagt er um Barack Obama,
berserkinn athafnasama.
Hann vill kljást við McCain,
en kerling er ein –
þessi Hillary – öllum til ama.



mbl.is Búið spil fyrir Clinton?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumarliði aftur kominn til starfa á Mogganum?

Picture 50Það er alveg ótrúlegt hvað hann Sumarliði (sumaríhlaupamaðurinn á mbl.is) getur verið hroðvirkur. Ég fékk hroll við að lesa þessa, annars skemmtilegu smáfrétt, því blaðamaðurinn gleymdi alveg að vanda sig.

Picture 49 Greip hér tvö dæmi af handahófi, annars vegar sama orðið skrifað á tvo mismunandi vegu og hins vegar „mér langar“ dæmi... þágufallssýkina víðfrægu. Það er eitt að heyra slíkt sagt á förnum vegi, en ætti varla að sjást í fréttamiðli sem á að taka alvarlega.


mbl.is Fjögurra ára Bítlaaðdáandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Limra

Jóhannes keypti sér jakkaföt,
í járnvörubúð uppi á Bakkaflöt.
En rosa var ljótt,
hvað þau ryðguðu fljótt
og nú situr hann sveittur að lakka göt.


Limra

Kalli hann syngur úr kverinu,
sem keypti hann uppi á skerinu.
En aleinn hann á það
og enginn má sjá það,
svo hann felur það vestur í verinu.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Kr.

Gunnar Kr. býr í Kópavogi. Það er gott að búa í Kópavogi. Þriggja drengja faðir og áhugamaður um mannlegt atferli, tónlist, kveðskap og töfrabrögð.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband