Færsluflokkur: Bloggar
18.6.2008 | 13:04
Kaffi- og konfektlimra
Oft fær hann Kalli sér kaffitár,
og konfekt - en þá verður Haffi sár.
Því hann er í megrun
og mikilli fegrun
og ónefndu allsherjarstraffi í ár.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2008 | 17:46
Kirkjulimra
Séra Sigurður Árni Þórðarson flutti tillögu um að kirkjuárið verði litgreint upp á nýtt. Tillagan var samþykkt einróma og voru nokkrir hissa á hve ljúft þetta rann í gegn hjá prestunum.
Uppi varð fótur og fit,
og flestir víst urðu bit.
Er Sigurður frækni,
loks sýndi þá tækni,
að kirkjan nú kæmist í lit.
![]() |
Kirkjan skiptir litum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.6.2008 | 14:09
Fiskbúðarlimra
Já, þeir keyptu upp gamlar, góðar og ódýrar fiskbúðir.
Breyttu innréttingum, opnuðu undir merkjum Fiskisögu, með nýju starfsfólki.
Soðningin hækkaði í sumum tilfellum á nokkrum mánuðum um nærri 50%
Auðvitað láta neytendur ekki bjóða sér svona verðhækkun, sem endar með því að fiskneysla minnkar ...
Sem dæmi má nefna að ný ýsa með roði kostar 980,- kr. í Fiskbúðinni Hófgerði og 990,- kr. í Hafinu-Fiskiprinsinum í Hlíðasmára en hún kostar 1.090,- í Fiskisögu.
Já, það munar yfir 100,- kr. á kílóinu ... 10% bara á þessu.
Ég hugsa til horfinna daga,
er höndlaði ei Fiskisaga.
En á broti úr degi,
þeir boluðu úr vegi,
fiskbúðum - fólki til baga.
![]() |
Flestir starfsmenn Fiskisögu endurráðnir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.6.2008 | 16:31
Kominn með fasta framtíðarvinnu!
Kunningi minn hefur undanfarin ár verið í íhlaupavinnu, tekið að sér viðvik og viðvik og fengið greitt fyrir. En nú er hann loksins kominn með fasta framtíðarvinnu og hefur meira en nóg að gera. Hann sagðist varla sjá fram úr verkefnum á næstunni og jafnvel næga aukavinnu að fá.
En hvaða vinnu fékk þessi heppni maður?
Jú, hann keyrir á milli bensínstöðva og sér um að hækka verðið á bensíni og Diesel-olíu á dælunum.
![]() |
Eldsneytisverðhækkun vegna veikrar stöðu dals og hás olíuverðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2008 | 16:13
Morgunblaðslimra
Síðastliðinn þriðjudag var stór forsíðufrétt á Morgunblaðinu: Álftin fær sér kríu. Þar var sýnd mynd af kríu sem hafði sest á höfuð álftar á tjörn nokkurri fyrir vestan. Síðar kom í ljós að álftin var plastdót sem skipstjóri nokkur setti stundum á tjörnina, til að punta hana.
Ég held ei að svo mikið hasti,
að höndunum allir til kasti.
En forsíðufrétt,
var fráleitt svo rétt,
því álftin var aðeins úr plasti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2008 | 12:42
Gjaldeyrislimra
Leyfilegt var að nýta sér kerfisvillu og sneri hæstiréttur þar dómi héraðsdóms. Að sögn ljósvakamiðlanna fá mennirnir því að öllum líkindum að halda hagnaðinum.
Hæstaréttsdómur er haldmeiri
og háðslegt að rautt gefi ei spjald fleiri.
Því gera má grillu
og gjörnýta villu
og raka inn á reikninga gjaldeyri.
![]() |
Máttu nýta sér kerfisvillu í netbanka Glitnis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.6.2008 | 00:45
Sýslumannslimra á Selfossi
Hann fas ber hins fágaða ljóns,
er fólk minnist jarðskjálftatjóns.
Og aldrei hann sefur
því Ólafur hefur,
athugað rolling stones.
![]() |
Fjölmenni á íbúafundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2008 | 16:17
Það var málið!
Þetta líst mér vel á! Kæra þessa lúða og láta þá borga fyrir þrifin.
Það er óþolandi að þetta skemmdarverkalið hafi vaðið yfir allt og alla með úðabrúsana sína. Dæmi eru um að þetta lið úði á bæsað tré, steni klæðningar og innbrennt ál, sem erfitt - eða jafnvel er útilokað að þrífa. Eftir sitja húseigendur með skemmdarverkin á veggjunum eða háa málningar- og verkreikninga.
Ég yrki um leiðindalúða,
sem lög brjóta með því að úða.
Bara tak' essa álfa
og úð' á þá sjálfa
og setj' út torg eins og trúða.
![]() |
Kópavogur sker upp herör gegn veggjakroti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
28.5.2008 | 15:38
Mismununin heldur áfram
Já, það var svosem auðvitað. Ekki búið að herða alla hnúta fyrir útsendingu. Ætli þetta hefði gerst ef karlalandsliðið hefði átt í hlut?
Annað ... ætli stelpurnar fái ennþá minna fyrir hvern leik, en strákarnir?
![]() |
Leikur Íslands gegn Serbíu ekki á RÚV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.5.2008 | 11:20
Svonalagað þarf að rannsaka niður í kjölinn!
Já, það er furðulegt hvað sumir ofmetnast við að komast í úníform og svonalagað á ekki að líðast, en þetta myndbrot gengur eins og eldur um sinu á netinu.
Svona framferði þarf að rannsaka niður í kjölinn og það er heldur ekki æskilegt að kollegar lögregluþjónsins sjái um þá rannsókn. Utanaðkomandi, hlutlausir aðilar þurfa að koma að henni. Þarna er of langt gengið og hvort sem pilturinn er sekur eða saklaus, get ég ekki séð neitt sem réttlætir svona tilefnislausa árás fyrir kjaft. Fá laganna verðir ekki lengur grunnþjálfun í mannlegum samskiptum?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Viðskipti og fjármál