Leita í fréttum mbl.is

Bráðskemmtilegt kvöld og „uppskurðurinn“ var flottur!

Uppskurður Baldurs Brjánssonar á Græna hattinum

Hólakvöldið á Græna hattinum á Akureyri var bráðskemmtilegt. Davíð Hjálmar Haraldsson las vel ortar sonnettur, Hjálmar Freysteinsson las smellnar limrur, ég tengdi tvo einstaklinga (sem ekkert þekktust) svo sterkum tilfinningaböndum að konan skynjaði snertingu sem maðurinn varð fyrir og síðan var hápunktur kvöldsins þegar töframaðurinn Baldur Brjánsson „skar upp“ með berum höndum. „Sjúklingurinn“ var Hjálmar læknir Freysteinsson og aðstoðarmaðurinn var akureyrski töframaðurinn Einar einstaki. Það er að vísu rangt haft eftir í fréttinni, að á pilluglasinu sem kom úr iðrum Hjálmars stóð að pillurnar væru gegn ritstíflu og væru stuðla- og endarímsaukandi.

Eins og kemur fram í bókinni um Baldur, Töfrum líkast, þá skar hann upp í sjónvarpssal fyrir rétt rúmum 30 árum, sem hafði þær afleiðingar að ferðir Íslendinga til Filippseyja í lækningaskyni lögðust alveg af.

Baldur nú borar í Hjálmar
og baldinn um innyflin fálmar.
En mér fyndist það rangt,
ef hann færi of langt.
– þá yrðu sungnir hér sálmar.


mbl.is Uppskurður á niðurskurðartímum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Kr.

Gunnar Kr. býr í Kópavogi. Það er gott að búa í Kópavogi. Þriggja drengja faðir og áhugamaður um mannlegt atferli, tónlist, kveðskap og töfrabrögð.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband