Leita í fréttum mbl.is

Ætli hann verði ekki frægur?

m_b4eeb19b01f1b3faa79eb42e997b493aÞað er alltaf gaman af því þegar einhver sem maður þekkir til gerir góða hluti. Jói Kristins ólst upp í næsta botnlanga fyrir ofan okkur og var í bekk með Axeli, miðstráknum á heimilinu. Hann var alltaf frjór í Snælandsskóla og þurfti næg verkefni til að leysa. Einu sinni kom ég í foreldraviðtal hjá umsjónarkennara Daniels, þess elsta. Þá var Jói uppi á gluggakistu, úti í glugga og var að ulla á gesti og gangandi, með Elsu kennarann sinn öskrandi fyrir aftan.

Ég hlustaði á nokkur laga hans á mæspeis-síðunni hans og þau lofa góðu. Ljúf kassagítartónlist með skemmtilega minimalískum útsetningum, sem mér fellur mjög vel. Það þarf ekki alltaf að ráða alla hljóðfæraleikara landsins til að spila undir, eins og upp á síðkastið hjá Bjögga og Bubba. Nú þarf Jói bara að læra að syngja á íslensku, þá verður hann enn betri.

477748A

Ætli hann verði ekki frægur, hann Jóhann? Ef hann fetar í fótspor pabba síns, þá gæti hann orðið stórfrægur. Pabbi hans byrjaði einmitt á kassagítarspili á hippatímabilinu, hann Kristinn Sigmundsson.

 


mbl.is Jóhann Kristinsson gefur út sína fyrstu plötu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Kr.

Gunnar Kr. býr í Kópavogi. Það er gott að búa í Kópavogi. Þriggja drengja faðir og áhugamaður um mannlegt atferli, tónlist, kveðskap og töfrabrögð.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband