22.5.2008 | 11:49
Góðir tónleikar hjá „Jóni Þokukennda“
Það var stórgaman á tónleikum jálksins úr Creedence Clearwater Revival, ljóninu, John Cameron Fogerty!
Ég var kominn í höllina um 20:20 og hinkraði í smástund í anddyrinu eftir þeim síðasta úr hópnum sem fór með mér. Sá Bubba og hann heilsaði mér að fyrra bragði, hefur líklega mundað eftir mér síðan ég hjálpaði honum að tengja prentarann hans við Macintosh-tölvuna í denn...
Þegar við gengum inn, var KK að syngja og spila, ásamt Ásgeiri Óskarssyni á trommur, Þorleifi Guðjónssyni á bassa og gítarleikurunum Pétri Guðmundssyni og Björgvini Gíslasyni (sem var í ham). Ég hafði ekkert heyrt að þeir myndu leika fyrir Fogerty-tónleikana, svo þeir komu skemmtilega á óvart. Hljóðblöndunin var að vísu slök, svo þeir fengu ekki notið sín sem skyldi. Þeir hættu rétt upp úr klukkan níu, en þá áttu tónleikarnir líka að byrja.
En við biðum og biðum og biðum og biðum og biðum ... í 50 mínútur! Fólk var farið að klappa, stappa, baula og púa. Virðulegur maður í drapplitum jakka baulaði meira að segja þegar Fogerty gekk inn á sviðið, en flestir klöppuðu. Það er auðvitað vanvirðing við fólk sem er búið að kaupa miða á tónleika kl. 21 að hefja þá ekki fyrr en tæpum klukkutíma síðar.
Hann byrjaði á CCR slögurum og bætti svo við nokkrum lögum frá sólóferli sínum, Status Quo-smellnum Rockin' All Over the World, sem Fogerty samdi að vísu og svo kom allt í einu lag sem Little Richard gerði frægt, Good Golly Miss Molly, en það lag var á annarri plötu CCR: Bayou Country. Proud Mary kom svo loksins í uppklappinu, en lög eins og Lodi, Who'll Stop the Rain, Down on the Corner, Cotton Fields, Midnight Special, Bad Moon Rising, Fortunate Son, Lookin' Out My Back Door, Suzie Q og I Heard It Through the Grapevine höfðu þá öll hljómað. Sem betur fer, sleppti hann eina CCR-laginu sem ég hoppa yfirleitt yfir, en það er: I Put a Spell On You.
Hann hafði einvala lið hljóðfæraleikara með sér og aðalsnillingurinn held ég að hafi verið sá yngsti í hópnum, Jason Mowray, sem lék á fiðlu, mandólín, dobro, slide-gítar, banjó og ég veit ekki hvað og hvað...
Í heildina litið, voru þetta magnaðir tónleikar og ég held að allir hafi skemmt sér konunglega. En rafmagnssuð ómaði í hátölurunum alla tónleikana og svo virðast menn aldrei kunna á loftræstinguna, þegar svo margir eru samankomnir. En þrátt fyrir það, fóru allir heim í gær með bros á vör og gleði í hjarta!
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Menning og listir, Samgöngur, Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 12:16 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Viðskipti og fjármál
Athugasemdir
Já og ótrúlega kraftmikill líka! Hann er fantagóður gítarleikari og löngu búinn að sanna sig sem lagahöfundur
Gunnar Kr., 22.5.2008 kl. 15:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.