Leita í fréttum mbl.is

Gjaldeyrislimra

Leyfilegt var að nýta sér kerfisvillu og sneri hæstiréttur þar dómi héraðsdóms. Að sögn ljósvakamiðlanna fá mennirnir því að öllum líkindum að halda hagnaðinum. 

Hæstaréttsdómur er haldmeiri
og háðslegt að rautt gefi ei spjald fleiri.
Því gera má grillu
og gjörnýta villu
og raka inn á reikninga gjaldeyri.


mbl.is Máttu nýta sér kerfisvillu í netbanka Glitnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Kr.

Þveröfugt við Bylgjufréttir, þá segir Mogginn að mennirnir hafi skilað hagnaði sínum.

Gunnar Kr., 8.6.2008 kl. 15:53

2 Smámynd: Sigurjón

Auðvitað verður Glitnir bara að taka á sig tapið.  Þetta var þeim sjálfum að kenna, að skima ekki kóðann hjá sér betur...

Sigurjón, 17.6.2008 kl. 16:30

3 Smámynd: Gunnar Kr.

Ekki aldeilis!

Þeir þvinguðu gróðapungana til að skrifa undir skuldbindingu þess eðlis að hvernig sem færi, þá endurheimti bankinn féð, rétt eins og í Stuðmannalaginu um Svarta-Pétur. 

Gunnar Kr., 18.6.2008 kl. 12:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Kr.

Gunnar Kr. býr í Kópavogi. Það er gott að búa í Kópavogi. Þriggja drengja faðir og áhugamaður um mannlegt atferli, tónlist, kveðskap og töfrabrögð.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband