Leita í fréttum mbl.is

Fáránlegt að kalla þetta íþróttafrétt!

Þótt íþróttamaður brjóti af sér og hagi sér eins og glæpamaður, finnst mér fáránlegt að flokka það sem íþróttafrétt. Væri það ekki jafn gáfulegt og ef veðurfræðingur væri stöðvaður fyrir ógætilegan akstur og sagt væri frá því í veðurfréttum?

„Einar E. Einarsson veðurfræðingur var stöðvaður af lögreglu um þrjúleytið í dag, en hann mældist á 144 km hraða á Reykjanesbraut, þar sem ekki má aka hraðar en 90 km á klukkustund ... í suðaustan rigningu og þremur vindstigum. Hitastig, þegar Einar var handtekinn, var um fjórar gráður.“

 Nei, það sem gerist utan íþróttaleikvangs og utan íþróttanna sjálfra, er ekki íþróttafrétt, jafnvel þótt maðurinn sé íþróttamaður! Þetta er bara almenn, erlend frétt – og ekkert annað!


mbl.is Steven Gerrard handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Kr.

Gunnar Kr. býr í Kópavogi. Það er gott að búa í Kópavogi. Þriggja drengja faðir og áhugamaður um mannlegt atferli, tónlist, kveðskap og töfrabrögð.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband